KEA og Höldur hafa hvort um sig keypt 5% hlut í hópferðabílafyrirtækinu SBA-Norðurleið á Akureyri af Gunnari M. Guðmundssyni framkvæmdastjóra og einum aðaleigenda félagsins. Því til viðbótar hafa verið undirritaðir valréttasamningar milli KEA og Gunnars um 15% eignarhlut í SBA-Norðurleið. SBA-Norðurleið er stærsta hópferðabílafyrirtæki utan höfuðborgarsvæðisins og er með um 80 bíla í rekstri og hjá félaginu eru um 85 heilsársstörf.

Gunnar segist ánægður með að að fá fjársterka aðila inn í eigendahóp félagsins í frétt á vef KEA . „Þrátt fyrir fækkun ferðamanna til landsins í ár sjáum við tækifæri á þessum markaði til lengri tíma litið. Ég tel mikilvægt að efla félagið á yfirvegaðan máta í því umhverfi sem nú ríkir og hver veit nema tækifæri til vaxtar skapist í þessum aðstæðum. Við viljum hafa félagið eigendalega sterkt og vel fjármagnað til að standa af okkur sveiflur á markaði og undirbyggja frekari eflingu félagsins til lengri tíma," er haft eftir Gunnari.

Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA kveðst hlakka til samstarfs við aðra eigendur SBA-Norðurleiðar. „Þetta félag hefur verið rekið farsællega í gegnum tíðina og með þessum kaupum erum við að slást í hóp með reynsluboltum á þessu sviði og markmið okkar er að gera gott fyrirtæki betra og styðja við félagið í að nýta þau vaxtartækifæri sem kunna að bjóðast á næstu mánuðum og misserum," segir Halldór.

Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds, sem rekur meðal annars Bílaleigu Akureyrar, bendir á að bæði fyrirtæki eigi rætur sínar og höfuðstöðvar á Akureyri og hafi í gegnum tíðina unnið saman að markaðssetningu Norðurlands á mörgum sviðum. Aukin samvinna sé af hinu góða og muni styrkja rekstur beggja enn frekar og styðja við uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu.