Kaupfélag Eyfirðinga svf. hefur selt hlut sinn í Samherja en yfirtökutilboð stærstu eigenda félagsins er nú í gangi. KEA átti 166.000.000 hluti í Samherja sem jafngildir 10% hlutafjár í félaginu. Miðað við yfirtökutilboðið 12,4 (en þá er tekið tillit til arðs) hefur KEA fengið 2060 milljónir fyrir hlut sinn. Bókfært verð hlutarins í síðasta ársreikningi KEA er hins vegar 1.842.600.000 kr. og því söluhagnaður KEA um 218 milljónir kr.