Á aðalfundi Greiðrar leiðar ehf. ? undirbúningsfélags um gerð jarðganga undir Vaðlaheiði ? á Akureyri í gær var kynnt samþykkt stjórnar Kaupfélags Eyfirðinga svf. frá 21. júní sl. sem kveður á um að félagið kallar eftir stofnun framkvæmdafélags um gerð Vaðlaheiðarganga og er tilbúið að tryggja hlutafé allt að 100 milljónir króna til félagsins.

Greið leið ehf. var stofnuð 28. febrúar 2003, en að félaginu standa öll sveitarfélög, sem eiga aðild að Eyþingi ? sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi eystra - auk tíu fyrirtækja. Tilgangur félagsins er að standa fyrir nauðsynlegum undirbúningi fyrir stofnun félags um gerð og rekstur jarðganga undir Vaðlaheiði. Þar með talið er kynningarstarf, áætlanagerð og samningar við ríki og fjárfesta.

Á fyrsta aðalfundi Greiðrar leiðar á Akureyri í gær sagði stjórnarformaður félagsins, Pétur Þór Jónasson, að fyrir liggi að Vaðlaheiðargöng yrðu blönduð framkvæmd með þátttöku ríkisins ? horft sé til þess að ríkið verði með sem næst 40-45% eignarhlut í verkefninu en 55-60% kostnaðar verði fjármögnuð með veggjöldum. Stjórn Greiðrar leiðar hefur kynnt verkefnið fyrir þingmönnum og samgönguyfirvöldum og haft náið samráð við stjórnendur Vegagerðarinnar. Þá hefur verkefnið verið kynnt fyrir samgönguráðherra.

Fram kom á aðalfundinum í gær að vonir eru bundnar við að við endurskoðun vegaáætlunar í haust verði Vaðlaheiðargöngum markaðir fjármunir til undirbúningsrannsókna, en ljóst er að næst þarf að ráðast í ýmsar undirbúningsframkvæmdir vegna ganganna. Kaupfélag Eyfirðinga hefur þegar samþykkt að leggja fram 5 milljónir króna til undirbúningsrannsóknanna, sem verði færðar sem hlutafé í framkvæmdafélagi um göngin.

Pétur Þór Jónasson sagði á aðalfundinum í gær að hann hefði þann 28. maí sl. átt fund með þingmönnum Norðausturkjördæmis þar sem í fyrsta lagi var óskað eftir stuðningi þingmanna við að Vegagerðin vinni rannsóknaráætlun fyrir Greiða leið vegna undirbúningsrannsókna, í öðru lagi að Vaðlaheiðargöng fari inn á vegaáætlun við endurskoðun hennar í haust og í þriðja lagi að þingmenn tryggi viðbótarfjármagn til undirbúningsrannsókna, allt að fimm milljónir króna, til viðbótar við framlag KEA.

Miðað við þá veglínu sem til þessa hefur verið til skoðunar yrðu Vaðlaheiðargöng um 7,2 km að lengd. Forskálar yrðu um 200 metrar, um 50 metrar vestan ganganna og um 150 metrar austan ganganna. Leggja þyrfti nýja vegi að göngunum, samtals um 2 km að lengd. Í samanburði við þjóðveg eitt um Víkurskarð yrði stytting leiðarinnar með tilkomu jarðganga á bilinu 15-16 km.

Almennt er talið að jarðfræðilegar aðstæður séu hagstæðar í Vaðlaheiði til jarðgangagerðar. Jarðlögin eru 9-10 milljóna ára gamalt basalt og er bergið talið vera víðast hvar nokkuð þétt og leki því óverulegur

Hreinn Haraldsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar, greindi frá því á aðalfundi Greiðrar leiðar í gær, að meðaltalsumferð árið 2003 um Víkurskarð hefði verið 980 bílar á sólarhring ? yfir sumarmánuðina ? júní, júlí og ágúst - væri sólhringsumferðin að meðaltali 1590 bílar. Hreinn sagði að ætla mætti að við opnun ganganna yrði fjórðungs aukning umferðar á þessari leið og færi að jafnaði upp í um 1225 bíla á sólarhring. Þetta er sem næst þriðjungur umferðar um Hvalfjarðargöng.

Hreinn sagði að samkvæmt endurskoðaðri áætlun myndi heildarkostnaður við Vaðlaheiðargöng nema um 5 milljörðum króna ? án fjármagnskostnaðar (með vsk). Inni í þessari tölu er kostnaður vegna allra undirbúningsrannsókna, hönnunar, eftirlits og gerðar sjálfra ganganna.

Fyrir liggur að næstu skref í undirbúningi Vaðlaheiðarganga er að ráðast í jarðfræðikortalagningu á svæðinu. Velja þarf heppilegustu veglínuna, sem þarf bæði að taka mið af jarðlögum og tengingu við vegakerfið beggja vegna Vaðlaheiðar. Að öllum rannsóknum loknum verður unnt að endurmeta kostnað við gerð Vaðlaheiðarganga og taka endanlega ákvörðun um framkvæmdina.

Ætla má að kostnaður við undirbúning gangagerðarinnar nemi 100-150 milljónum króna, sem er 2-3% af áætluðum 5 milljarða heildarkostnaði við Vaðlaheiðargöngin. Af þessum 100-150 milljóna króna undirbúningskostnaði er áætlað að rannsóknir nemi 25%, umhverfismat 10% og hönnun og útboð 65%.

Gróft áætlað er talið að leiðaval og jarðfræðirannsóknir vegna Vaðlaheiðarganga taki um eitt ár. Lokarannsóknir, matsferli, hönnun og gerð útboðs taki tvö ár og framkvæmdirnar sjálfar taki um þrjú ár.

Á aðalfundi Greiðrar leiðar ehf. í gær var endurkjörin stjórn félagsins. Formaður er Pétur Þór Jónasson, framkvæmdastjóri Eyþings ? sambands sveitarfélaga á Norðurlandi eystra - og aðrir aðalmenn í stjórn eru Andri Teitsson, framkvæmdastjóri Kaupfélags Eyfirðinga, og Ásgeir Magnússon, forstöðumaður Skrifstofu atvinnulífsins á Akureyri. Varamenn í stjórn eru Jóhann Guðni Reynisson, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar, og Bjarni Jónasson, bæjarfulltrúi á Akureyri.