Hagnaður Keahótela á árinu 2013 nam rúmum 139 milljónum króna. Er það nokkru meiri hagnaður en á árinu 2012 þegar hann nam 86 milljónum króna.

Í lok árs 2013 námu eignir félagsins 508 milljónum króna, en skuldir voru 351 milljón króna. Nam eigið fé fyrirtækisins því í árslok 158 milljónum króna og var eiginfjárhlutfall félagsins 31%.

Stjórn félagsins lagði til að greiddur yrði arður til hluthafa félagsins sem næmi 134 milljónum króna vegna rekstrarársins, en ári fyrr var greiddur arður til hluthafa að fjárhæð 79 milljónir króna. Eigandi félagsins er Hvannir ehf.