Keahótel hafa gengið frá kaupum á Hótel Kötlu við Vík í Mýrdal samkvæmt tilkynningu frá Keahótelum. Hótelið verður rekið undir sama nafni og að mestu í óbreyttri mynd samkvæmt tilkynningunni.

Hótel Katla er þriggja stjörnu heilsárshótel, um 5 kílómetrum frá Vík í Mýrdal, með 103 herbergi ásamt veitingastað sem tekur allt að 200 manns í sæti.

„Hótel Katla er einstaklega vel staðsett í fallegu umhverfi og sjáum við mikla möguleika til frekari uppbyggingar á svæðinu,” segir Páll L. Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Keahótela.

Hótel Katla verður tíunda hótelið sem rekið verður undir merkjum Keahótela, en fyrir rekur það sex hótel í Reykjavík og þrjú á Norðurlandi með samtals 794 herbergi. Kaupverðið trúnaðarmál samkvæmt fyrrnefndri tilkynningu.