Keahótel ehf. munu leigja Austurstræti 16 af dótturfélagi Regins. Reginn keypti eignina, sem áður hýsti Apótek Reykjavíkur, af Karli Steingrímssyni á dögunum. Húsið er alls 2.773 m2 að stærð.  Fyrirhugað er að í því verði innréttað og rekið glæsilegt hótel ásamt veitingastað sem hæfa mun  yfirbragði og sögu hússins . Reginn hf. mun sjá um og stýra framkvæmdum á húsinu.  Gert er ráð fyrir að rekstur geti hafist í lok næsta sumars.

Keahótel ehf. eru nú þegar einn af stærri leigutökum Regins en þeir leigja einnig Hótel Kea á Akureyri. Lagt var í umfangsmiklar endurbætur á Hótel Kea í sumar og er hótelið í dag eitt af þeim glæsilegri á landinu.  Keahótel ehf.  reka einnig Hótel Norðurland á Akureyri, Hótel Gíg á Mývatni og í Reykjavík; Hótel Borg, Hótel Björk og Reykjavík Lights.

„Við erum mjög ánægð  með að hafa náð samningum við Keahótel því um er að ræða rekstraaðila með mikla reynslu og sérþekkingu á þessu sviði .  Sömuleiðis eru aðilar  sammála um að varðaveita og hafa að leiðarljósi við hönnun og breytingu innanhúss þann fágaða og glæsilega stíl sem húsið býður upp á,“ segir Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins hf. í tilkynningu.

„Um er að ræða mikilvægt skref fyrir  rekstur Keahótela að hafa náð leigusamningi um Austurstræti 16.  Keahótel er nú þegar með hótel rekstur í samliggjandi eignum þ.e. Hótel Borg og með því er komin rekstrarleg  samfella milli allra húsanna í lengjunni frá Hótel Borg  til og með Austurstræti 16.  Þetta gefur okkur mikla möguleika í framtíðinni að tengja rekstur þessar hótela saman og samnýta ýmsa rekstraþætti.  Við horfum því bjartsýn til framtíðarinnar og hlökkum til að starfa með Reginn í þessu verkefni sem er framundan,“ segir Páll L. Sigurjónsson framkvæmdastjóri Keahótel.