Keflavíkurflugvelli hefur verið lokað fyrir allri flugumferð vegna Eldgossins í Eyjafjallajökli. Sama gildir fyrir flugvellina í Reykjavík og á Akureyri. Gosið er því þegar farið að hafa efnahagsleg áhrif hér á landi. Reglur gera ráð fyrir lokun flugvalla í allt að 120 sjómílna fjarlægð frá eldstöð. Flugvélum Icelandair á leið til Íslands frá Orlando og Seattle í Bandaríkjunum var snúið við vegna eldgossins fyrr í nótt.
Nú er hrein austanátt við jökulinn og gosaska getur því borist í háloftunum suður með Reykjanesi, en hún getur verið mjög hættuleg fyrir hreyfla á farþegaþotum. Væntanlega kemur í ljós með morgninum hvernig stefna gosefna frá eldstöðinni er, en spár gera ráð fyrir austanátt fram á þriðjudag þegar vindur snýst meira í norðaustan átt.