Samtök aldraðar í Reykjavík hafa samið við Keflavíkurverktaka hf um byggingu fjöleignahúss við Sléttuveg 19-23 í 103 Reykjavík. Húsið er samtals 11.200 fermetrar og í því eru 70 íbúðir auk 72. stæða í bílgeymslum. Fyrsta skóflustungan hefur þegar verið tekin og verkið hefst með fullum krafti á næstu vikum.