Runólfur Ágústsson, framkvæmdastjóri Keilis og Christian Dries, forstjóri Diamond Aircraft Industries, skrifuðu undir kaupsamning um 5 nýjar kennsluvélar fyrir Flugakademíu Keilis í Vínarborg í gær.  Kaupverð vélanna, tæpar 200 milljónir króna, er að mestu fjármagnað af seljanda ásamt Bank Austria. Möguleiki er á að bæta öðrum 5 vélum við samninginn árið 2009.

Um er að ræða tvær DA20 tveggja manna vélar, tvær DA40 fjögurra manna vélar og eina DA42 tveggja hreyfla fjögurra manna vél með afísingar- og blindflugsbúnaði. Vélarnar eru allar búnar stýripinna og stærri vélarnar eru jafnframt búnar stafrænum stjórntækum og mælaborði. Diamond vélar eru knúnar umhverfisvænum og sparneytnum díselhreyflum.

Fystu vélarnar koma til landsins eftir mánuð en þær síðustu í janúar næstkomandi. Bóklegt einkaflugmannasnám hefst hjá Flugakademíu Keilis nú um mánaðamótin en Flugakademían er hluti af Samgöngu- og öryggisskóla Keilis, sem Hjálmar Árnason stýrir.

Diamond flugvélar, sem framleiddar eru í Austurríki og Kanada, eru m.a. notaðar af bandaríska flughernum til grunnþjálfunar flugmanna.

„Þetta er bylting í flugkennslu á Íslandi“, segir Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Samgöngu- og öryggisskóla Keilis. „Í fyrsta sinn er boðið upp á nútímalegar kennsluvélar í flugnámi hérlendis.  Sá tími að kennsla fari fram á yfir 20 ára gömlum og úreltum vélum er liðinn. Þá er það frábært að geta boðið upp á flugnám á Keflavíkurflugvelli, stærsta alþjóðaflugvelli landsins, þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar.“

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Keili.