Keilir, miðstöð vísinda fræða og atvinnulífs, hefur ákveðið að lækka skólagjöld við Háskólabrú í fjarnámi um tæp 30% vegna mikillar aðsóknar í námið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Keili en þar segir að á annað hundrað nemendur séu nú að hefja slíkt nám hjá skólanum.

Þá kemur fram að auglýst gjöld gerðu ráð fyrir mun minni þátttöku. Skólagjöld í öðru fjarnámi við skólann breytast ekki. Skólagjöld við Háskólabrú voru áður 13.000 fyrir hverja einingu en verða nú 10.000 krónur. Breytingin tekur strax gildi og á bæði við um núverandi og nýja nemendur.

Í tilkynningunni kemur fram að alls bárust töluvert á þriðja hundrað umsóknir um nám við Háskólabrú, „þar af margar frá fólki sem upplifað hefur breytingu á stöðu sinni og högum síðustu vikur vegna ástandsins í samfélaginu,“ segir í tilkynningunni.

Háskólabrú er samstarfsverkefni Keilis og Háskóla Íslands og býður deildin upp á aðfararnám fyrir einstaklinga sem ekki hafa lokið stúdentsprófi. Að loknu námi uppfylla nemendur almenn inntökuskilyrði innlendra háskóla og telst námið sambærilegt stúdentsprófi samkvæmt samningi Keilis, HÍ og menntamálaráðuneytisins.