Árið 2000 var markaðshlutdeild Pepsi á íslenskum markaði 15% en er í dag komið yfir 40%. Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir að stefnt sé að því að Pepsi verði markaðsráðandi. Indra Nooyi, forstjóri PepsiCo, dáist að víkingahugarfari Íslendinga.

Þetta kom fram á hátíðarfundi Ölgerðarinnar í morgun.