Nýr kjarasamningur Félags framhaldsskólakennara (FF) og Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS) við ríkið var undirritaður í dag í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Verkfalli hefur verið frestað þangað til búið er að greiða atkvæði um samningana. Nýr samningur byggir á lögum um framhaldsskóla frá árinu 2008 sem taka gildi árið 2015.
Á vef Kennarasambands Íslands segir að í samningnum felist umtalsverðar umbætur á launum kennara, námsráðgjafa og stjórnenda í framhaldsskólum ásamt endurmati á kennarastarfinu til launa.
Markmið með samningnum er að endurmeta kennarastarfið, aðlaga kjarasamninginn að lögunum frá 2008 og þar með auka möguleika á sveigjanlegra skólastarfi. Samningnum er ætlað að skapa starfsskilyrði og þann sveigjanleika innan framhaldsskóla sem nauðsynlegur er til að markmið nýrra laga um skólastarf nái fram að ganga. Enn fremur er leitast við að skapa nýja og bætta umgjörð um kennarastarfið.
Í samningnum er áætlun um samningu nýs vinnumats sem fulltrúar mennta- og menningarmálaráðuneytisins og kennarar munu leiða. Skilgreining þess verður unnin á komandi mánuðum í þeim tilgangi. Nýtt vinnumat verður kynnt kennurum sem greiða um það atkvæði í febrúar 2015.
Formenn FF og FS, sem og aðrir starfsmenn félaganna munu á næstu dögum fara um landið og kynna nýjan samning fyrir félagsmönnum sínum.