Sex alþjóðleg fyrirtæki hafa verið valin til samkeppni um mótun uppbyggingar- og þróunaráætlunar (Masterplan) fyrir Keflavíkurflugvöll til næstu 25 ára. Forval var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu í október og urðu eftirtalin fyrirtæki fyrir valinu:

  • INECO Ingenierta Y Economia del Transporte SA á Spáni
  • Ramboll A/S í Danmörku
  • Naco Netherlands Airport Consultants í Hollandi
  • Nordic - Office of Architecture í Noregi
  • EC Harris LLP í Bretlandi
  • Mott MacDonald LTD í Bretlandi

Uppbyggingar- og þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar verður framtíðarsýn á landnýtingu, uppbyggingu flugvallarmannavirkja og umhverfisáætlun sem nýtist öllum hlutaðeigandi við ákvarðanatöku um fjárfestingar og skipulagsmál með hagkvæmni og vistvæna þróun að leiðarljósi, samkvæmt fréttatilkynningu frá Isavia.

Þátttakendur í samkeppninni munu skila inn tillögum sínum 12. janúar nk. og verða eitt eða fleiri ofangreindra fyrirtækja valin til þess að vinna fullmótaða áætlun sem liggja skal fyrir í júní á næsta ári.

„Áhuginn sem verkefninu hefur verið sýndur er mjög ánægjulegur. Fyrirtækin búa yfir yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu og ég er fullviss um að niðurstaðan verður glæsileg fyrir þróun flugvallarins,“ segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia.