Ker hf. hefur ákveðið að draga sig út úr viðræðum um kaup á Icelandair Group að því er segir í fréttatilkynningu frá félaginu.

Í tilkynningunni kemur fram að Ker telur að Icelandair Group sé áhugavert fyrirtæki með gott starfsfólk og góðan stjórnendahóp sem gegni mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi og hafi jafnframt ýmis framtíðartækifæri.

"Af þessum ástæðum taldi Ker áhugavert að skoða þetta fjárfestingatækifæri af fullri alvöru. Verðlagning fyrirtækisins og aðferðafræðin við söluna var hinsvegar utan þess ramma sem Ker telur ásættanlegt og því hefur félagið ákveðið að draga sig út úr viðræðunum," segir í tilkynningu félagsins.