Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Kerecis hefur lokið fjármögnun fyrir 16 milljónir dollara. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Hlufafé var selt til núverandi og nýrra hluthafa fyrir $10 milljónir. Að auki breyttust skuldabréf með breytirétti að upphæð u.þ.b. $6 milljónir í hlutafé. Talsverð umframeftirspurn var hjá fjárfestum eftir bréfum í fyrirtækinu.

Kerecis sem var stofnað 2011 er með höfuðstöðvar og framleiðslu á Ísafirði. Félagið framleiðir afurðir sem byggðar eru á affrumuðu þorskroði sem inniheldur fjölómettaðar fitusýrur. Afurðirnar hafa jákvæð áhrif á frumuvöxt og eru seldar til meðhöndlunar á þrálátum sárum og brunasárum.

"Meðhöndlun á sykursýkisárum með þorskroði er á hraðri leið með að verða almenn á Bandaríkjamarkaði. Það er mikil aukning á sykursýki á heimsvísu og hundruð þúsunda aflimana framkvæmdar þegar sárameðhöndlun heppnast ekki,“ segir

"Hjá fyrirtækinu starfa nú um 80 manns, þar af 55 í Bandaríkjunum en starf þeirra er að selja vörur fyrirtækisins sem framleiddar eru á Ísafirði."