Ísfirska lækningavörufyrirtækið Kerecis hefur ráðið Mike Cadigan sem fjármálastjóra (Chief Financial Officer).

Cadigan hefur búið Seattle undanfarin ár og býr að 25 ára reynslu af fjármálastjórnun, þróun og fjárfestingarbankastarfsemi. Aðsetur Mike mun verða á skrifstofu Kerecis á Washington D.C. svæðinu.

Cadigan hefur verið ráðgjafi Kerecis frá árinu 2017, þar sem hann hefur starfað hjá Cadigan Capital, og komið að 16 milljón dala fjármögnun hjá Silicon Valley Bank.

Snemma á ferli sínum starfaði Cadigan við eignastýringu hjá Colony Capital auk starfa fyrir Deloitte & Touche. Cadigan er með MBA gráðu og BA í hagfræði frá Háskólanum í Kaliforníu. Hann er giftur Kathy Cadigan og eiga þau þrjú uppkomin börn.

Kerecis selur, framleiðir og þróar vörur unnar úr fiskroði og fitusýrum sem m.a. græða sár og verja líkamann fyrir veiru- og bakteríusmitum. Eins og Viðskiptablaðið sagði frá í desember námu tekjur félagsins 2,2 milljörðum króna á síðasta rekstrarári.

Frá árinu 2016 er Kerecis hóf rekstur í Bandaríkjunum hefur fyrirtækið meira en tvöfaldað veltu sína árlega segir félagið í tilkynningu . Jafnframt er vísað í  greiningarfyrirtækið SmartTRAK og sagt að Kerecis sé það fyrirtæki sem vex hraðast á bandaríkjamarkaði fyrir sáravörur.

Vöxtur félagsins milli þriðja ársfjórðungs 2019 og 2020 er jafnframt sagður 120% og að markaðshlutdeild fyrirtækisins hafi aukist um 100% á sama tíma. Kerecis er 11 stærsta fyrirtækið á sáramarkaðinum.