Kerfi A/S., dótturfélag Opin Kerfi Group hf., var tekið til gjaldþrotaskipta hjá Sö- og handelsretten í Kaupmannahöfn þann 24. október sl. samkvæmt beiðni stjórnar félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Opin Kerfi Group.

Þar kemur fram að samkvæmt reikningi fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2008 var velta Kerfi A/S 66,9 milljónir DKK og EBITDA neikvæð um 6 milljónir DKK.

Heildavelta Kerfi A/S er því um það bil 20% af heildarveltu Opin Kerfi Group hf. og eignir félagsins um það bil 23% af eignum Opin Kerfi Group hf.

Einnig kemur fram í tilkynningunni að ekki er gert ráð fyrir að þessi aðgerð hafi áhrif á rekstur félagsins.

Þá kemur fram að Kerfi AB í Svíþjóð gengur samkvæmt áætlun og er hagnaður af rekstri félagsins.