„Þetta er ákaflega spennandi verkefni. Það eru áhugaverðir tímar í íslensku viðskiptalífi og það skiptir miklu máli að efla traust og sátt á milli fyrirtækja og samfélags,“ segir Ketill B. Magnússon sem hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð. Hann tekur við starfinu af Regínu Ástvaldsdóttur, sem nýverið tók við starfi bæjarstjóra Akraneskaupstaðar.

Fram kemur í tilkynningu að Ketill hefur mastersgráðu í heimspeki og viðskiptasiðferði frá háskólanum í Saskatchewan í Kanada og MBA gráðu í stjórnun og rekstri frá ESADE í Barcelona á Spáni. Hann kennir viðskiptasiðfræði og samfélagsábyrgð við Háskólann í Reykjavík og hefur haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra um þau efni.

Ketill starfaði hjá Símanum frá árinu 2001, meðal annars sem forstöðumaður stefnumótunar, forstöðumaður starfsþróunar og fræðslu, og síðast sem mannauðsstjóri árin 2008-2012. Þá hefur hann víðtæka reynslu af félagsmálum og hefur m.a. verið formaður Heimili og skóla - landssamtaka foreldra frá 2011.