Flaga Group hf. hefur ráðið Kevin Kelly sem forstjóra SleepTech, LLC frá 31. ágúst 2005, en hann hefur verið sitjandi forstjóri frá því í apríl. Kevin hóf störf sem fjármálastjóri SleepTech árið 2000 og hefur síðastliðin tvö ár gegnt stöðu framkvæmdastjóra rekstrar- og fjármálasviðs.

Kevin hefur verið drifkraftur í starfsemi SleepTech frá því að hann gekk til liðs við fyrirtækið og hafði að baki 20 ára reynslu af rekstri spítala og stjórnun. Hann nýtur trausts jafnt meðal viðskiptavina og starfsmanna. "Ég er sannfærður um að SleepTech mun halda áfram að vera leiðandi fyrirtæki í þjónustu á svefngreiningarmarkaði með því að viðhalda þeirri hefð að leggja áherslu á úrvals þjónustu og gæði," sagði Kevin.