Nú rétt eftir hádegi fóru fram viðskipti með bréf í Glitni [ GLB ] fyrir 1.235 þúsund.

Um er að ræða 70 milljón hluti á genginu 17,65.

Heildarvelta með bréf í Glitni er því tæplega 2,4 milljarðar og hefur bankinn hækkað um 3,2% í Kauphöllinni í dag. Meðalgengi bankans er 17,75 á hvern hlut.

Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni er nú um 7,3 milljarðar og hefur Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkað um 4,17%.