Um kl. 15 í dag fóru fram viðskipti með bréf í Glitni [ GLB ] fyrir um 1,1 milljarð. Um er að ræða 66 milljón hluti á genginu 16,7. Ekki er vita hver er að baki viðskiptunum.

Fyrr í dag höfðu farið fram viðskipti með bréf í félaginu fyrir 505,5 milljónir. Þar var um að ræða 30 milljón hluti á genginu 16,85.

Velta með bréf í Glitni var í dag um 2,5 milljarður og var meðalgengið 16,75.

Glitnir hækkaði um 0,9% í Kauphöllinni í dag og var lokagengi með bréf í félaginu 16,75.