Nú rétt eftir hádegi fóru fram tvenn viðskipti með bréf í FL Group [ FL ] fyrir 524 milljónir og 554 milljónir.

Annars vegar er um að ræða um 87 milljón hluti á genginu 6,35 og hins vegar um 82,6 milljón hluti á sama gengi.

Heildarviðskipti með bréf í FL Group eru því um 1,1 milljarðar í dag og hefur félagið hækkað um 1,6% í Kauphöllinni en meðalgengi þess er 6,35.

Ekki er gefið upp hverjir stóðu að viðskiptunum.