Í morgun fóru ein stök fram utanþingsviðskipti með hlutabréf í Glitni [ GLB ] fyrir rúma 4,9 milljarða króna.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis er um að ræða sölu á 370 þúsund hlutum á genginu 13,33.

Velta með bréf í Glitni er það sem af er degi tæpir 5,2 milljarðar króna. Glitnir hefur hækkað um 1,7% það sem af er degi og er meðalgengi þess 13,5 á hvern hlut.