Utanþingsviðskipti með bréf Glitnis [ GLB ]  fyrir 1,6 milljarða fóru fram fyrir opnun markaðar í dag.

Um er að ræða 100 milljón hluti á genginu 16,05 sem er dagslokaverð gærdagsins, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Ekki er vitað hverjir standa að baki viðskiptunum.

Hlutabréf í Glitni hafa lækkað um 25% það sem af er ári.