Utanþingsviðskipti með bréf Glitnis [ GLB ] fyrir 2,1 milljarð króna fóru fram klukkan hálf tíu í morgun, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Gengi viðskiptanna var 17,3 krónur á hlut.

Ekki hefur verið tilkynnt um hver stendur að baki viðskiptunum.