Utanþingsviðskipti með bréf Glitnis[ GLB ]  námu 3,7 milljörðum króna í morgun, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Gengi viðskiptanna var 16,7.

Glitnir hefur lækkað um 1,5% við opnun markaðar og er gengið 16,45, þegar þetta er ritað.

Ekki hefur verið tilkynnt um viðskiptin til Kauphallarinnar.