Utanþingsviðskipti með bréf Glitnis [ GLB ] námu 4,5 milljörðum króna fyrir opnun markaðar í morgun. Um er að ræða 260.412.272 hluti á genginu 17,1, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Ekki er vitað hver stendur á bakvið viðskiptin.

Markaðsvirði Glitnis er 255 milljarðar króna. Bréfin hafa lækkað um 22% frá áramótum.