Utanþingsviðskipti með bréf Landsbankans fyrir 1,7 milljarða króna áttu sér stað eina mínútu eftir opnun markaðar.

Gengi viðskiptanna var 29,4, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Markaðurinn fer vel af stað í morgun, Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 2,73% og Landsbankinn um 3,23%.