Í morgun fóru fram utanþingsviðskipti með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] fyrir 3,8 milljarða.

Um er að ræðað 132,5 milljónir hluta á genginu 29 en ekki er gefið upp hverjir standa að kaupunum.

Gengi með bréf í Landsbankanum er 29,45 í Kauphöllinni í dag en félagið hefur hækkað um 0,3%.