Utanþingsviðskipti með bréf Straums [ STRB ] fyrir 1,7 milljarða króna áttu sér stað eina mínútu eftir opnun markaðar.

Gengi viðskiptanna var 11,54 samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Fjárfest var fyrir sambærilega upphæð í Landsbankanum [ LAIS ] á sama tíma.

Markaðurinn fer vel af stað í morgun, Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 2,73% og Straumur um 3,99%.