Á föstudag s.l. var fjögur þúsundasti Toyota bíllinn sem seldur er á árinu afhentur eigendum sínum.

Í fréttatilkynningu frá Toyota segir að Aðalheiður Jónsdóttir sem festi kaup á bílnum hafi keypt bílinn til að koma manni sínum, Erlendi Björnssyni, á óvart.

Magnús Kristinsson, stjórnarformaður Toyota, jók enn á óvæntu ánægjuna með því að færa þeim hjónum veglegan blómvönd og flugmiða með Icelandair að þessu tilefni.