Ferrari F430 F1 Coupe sem var í eigu Donald J. Trump Bandaríkjaforseta var keyptur á uppboði á 270 þúsund dollara eða því sem jafngildir um 30 milljónum íslenskum krónum. Þetta kemur fram í frétt CNN Money .

Trump seldi bílinn árið 2011 og keyrði hann einungis 2.400 mílur, en áhugasamur kaupandi keypti bílinn síðastliðinn laugardag á uppboði. Þegar bílinn var seldur, hljómaði „Hail to the Chief“ í hátalarakerfi á uppboðinu. Bílinn er vanalega metinn á í kringum 125 og 175 þúsund, en það eykur greinilega verðmæti bíla að hafa verið í eigu Donalds J. Trump.

Ekki kemur fram í fréttinni hver kaupandinn á bílnum var.