FISK Seafood greiddi 9,5 milljarða króna fyrir útgerðina Soffanías Cecilsson á síðasta ári samkvæmt ársreikningi Kaupfélags Skagfirðinga, eiganda FISK Seafood. 6,3 milljarðar króna voru greiddir með handbæru fé og 3,2 milljarðar  með yfirtöku skulda. Stærstu hluthafar Soffaníasar voru meðal hæstu skattgreiðenda síðasta árs.

Soffanías Cecilsson hagnaðist um 202 milljónir króna á síðasta fiskveiðiári. Fiskveiðiheimildir félagsins á fiskveiðiárinu sem hófst 1. september nam 3.404 þorskílgildistonnum. Þórólfur Gíslason er kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga