Kaupfélag Héraðsbúa (KHB) berst nú fyrir tilveru sinni og er fjárhagsstaða fyrirtækisins mjög erfið að því er kemur fram á vef Austurgluggans í dag.

Þar kemur fram að gjaldþrot Malarvinnslunnar, dótturfélags KHB, virðist hafa gengið mjög nærri fyrirtækinu.

Kaupfélagið var stofnað fyrir hundrað árum og starfa vel á annað hundruð manns hjá því. Það rekur verslanir á mörgum þéttbýlisstöðum á Austurlandi.

Þá kemur fram að Björn Ármann Ólafsson, stjórnarformaður KHB sagði í viðtali við Svæðisútvarpið í gær að fundað hefði verið með Landsbankanum reglulega frá því fyrir áramót og bankinn vinni ötullega að því að tryggja rekstrargrundvöll KHB.

Björn Ármann vildi ekki gefa upp skuldastöðu fyrirtækisins en sagði hana erfiða. Hann sagði gjaldþrot Malarvinnslunnar hafa kostað KHB um 700 milljónir króna. Hluti af því hafi verið kaupverð KHB á Malarvinnslunni.

Björn Ármann sagði Landsbankann leita allra leiða til að ekki þyrfti að reka KHB í gjaldþrot