Frystitogarinn Kiel sem gerður er út af DFFU dótturfélagi Samherja hf. kom til hafnar á Akureyri í fyrrakvöld með um 700 tonn af frystum þorskafurðum.  Einnig voru um borð tæplega 300 tonn af mjöli og lýsi.  Skipið var að koma úr 70 daga veiðiferð í Barentshafi og var heildarafli upp úr sjó um 2 þúsund tonn. Verðmæti afurðanna er áætlað um 300 milljónir króna sem er með allra mesta verðmæti sem komið hefur að landi eftir eina veiðiferð.

Brynjólfur Oddsson skipstjóri á Kiel var að vonum kampakátur við
heimkomuna.  "Við fórum frá Íslandi í lok júlí og gengu veiðarnar
afar vel þangað til allra síðustu dagana þegar árstíðaskiptin voru
farin að segja til sín.  Veðrið var ágætt allan tímann enda er
veður almennt betra í Barentshafi en á Íslandsmiðum", sagði
Brynjólfur í viðtali á heimasíðu Samherja og bættti við að Kiel væri afar gott sjóskip. Í áhöfn skipsins eru 32 menn og vinnslan var á fullum afköstum allan tímann að sögn Brynjólfs skipstjóra.
Kiel verður á Akureyri í um vikutíma vegna löndunar, viðhalds og
aðfangaöflunar en heldur næst til veiða á Grænlandsmið.


Skip á vegum Samherja hafa landað óvenju oft á Akureyri að
undanförnu og umtalsverðum verðmætum verið skipað á land.  Baldvin
Þorsteinsson EA 10 kom í fyrradag með yfir 300 tonn af afurðum
innanborðs og er verðmæti aflans metið á um 80 milljónir króna.