Danski söngvarinn Kim Larsen átti gríðarlega gott sumar. Hann hélt þrjátíu tónleika og heimsótti fjögur lönd. Og í enda sumars lauk líka reikningsárinu 2012/2013 hjá tónlistarfyrirtæki hans.
Hagnaður af rekstri hans var 6,4 milljónir danskra króna á síðasta reikningsári, sem er tæpar 130 milljónir króna. Eftir því sem fram kemur á danska vefnum epn.dk er það næstum þreföldun frá fyrra ári þegar hagnaðurinn nam 2,9 milljónum danskra króna.
Kim Larsen er orðinn 67 ára gamall. Hann hefur um margra ára bil notið vinsælda, bæði með mörgum hljómsveitum og einn. Hann hefur auðgast töluvert og eru eignir hans nú um 50 milljónir danskra króna eða um einn milljarður íslenskra króna.