Norðmaðurinn Kim André Gabrielsen hefur verið ráðinn sem sölustjóri Völku fyrir Norðurlöndin. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Kim er með víðtæka reynslu úr norskum sjávarútvegi og starfaði hann síðast sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Norwegian Fish Company. Áður var hann tæknistjóri norska sjávarútvegsfyrirtækisins Lerøy Norway Seafoods. Þá starfaði hann einnig sem framkvæmdastjóri í hvítfiskframleiðslu í Noregi. Kim hefur þegar hafið störf.

,,Það er mikill fengur fyrir Völku að fá Kim með hans miklu reynslu og þekkingu til starfa hjá okkur í Noregi og eru umsvif Völku í Noregi sífellt að aukast," segir Kristján Rúnar Kristjánsson, framkvæmdastjóri Völku í Noregi í tilkynningunni.