Kínverjar hafa skipað Zhang Weidong nýjan sendiherra á Íslandi. Boðað hefur verið til móttöku í kínverska sendiráðinu þann 1. október næstkomandi vegna skipunarinnar.

Forveri hans, Ma Jisheng, hvarf skyndilega af landinu fyrr á árinu með eiginkonu sinni og spurðist ekkert til hans í lengri tíma. Kínverskir fjölmiðlar greindu svo frá því fyrr í mánuðinum að sendiherrann fyrrverandi hefði verið handtekinn af kínverskum yfirvöldum vegna gruns um njósnir.