Evrópski seðlabankinn og seðlabanki Kína hafa gert með sér gjaldmiðlaskiptasamning til þriggja ára. Samningurinn gefur evrópska seðlabankanum kost á að kaupa allt að 350 milljarða kínverskra júana fyrir allt að 45 milljarða evra, jafnvirði 7.400 milljarða íslenskra króna. Þetta er einn af stærstu skiptasamningum Kínverja af þessum meiði, að mati Reuters-fréttastofunnar .
Fréttastofan segir jafnframt að samningurinn sé liður Kínverja í því að gera júaninn gildan í alþjóðlegu hagkerfi og auka umsvif hans til móts við Bandaríkjadal. Með það fyrir augum hefur seðlabankinn gert nokkra slíka samninga við aðra seðlabanka.
Stærsti samningurinn til þessa er við seðlabanka Suður-Kóreu en hann hljóðar upp á 360 milljarða júana. Seðlabanki Kína er jafnframt með skiptasamning við Hong Kong upp á aðra 400 milljarða.
Til samanburðar endurnýjaði Seðlabanki Kína og Seðlabanki Íslands gjaldmiðlaskiptasamning sín á milli undir lok september. Sá samningur hljóðar upp á 66 milljarða króna eð 3,5 milljarða júana.