Kínverjar nota nú júan, sinn eigin gjaldmiðil, til að kaupa hráolíu frá Íran. Viðskiptaþvinganir Bandaríkjamanna hafa gert Írönum erfitt að taka á móti greiðslum í dollurum en alla jafna er dollarinn ein gjaldmiðillinn sem notaður er í olíuviðskiptum Írana.
Breska ríkisútvarpið BBC hefur eftir írönskum erindreka að raunin sé sú að Kínverjar noti nú júanið í viðskiptum og séu Kínverjar raunar stærstu kaupendur olíu frá Íran.
Virði olíunnar sem Kínverjar kaupa frá Íran eru virði 20-30 milljarða bandaríkjadala. Bandaríkin hafa þrýst á Kína að taka þátt í alþjóðlegri sniðgöngu Íran vegna kjarnorkuáætlana þeirra.