Kínverska fyrirtækið HNA Group hefur eignast tæplega 10% í þýska bankanum Deutsche Bank. Það þýðir að kínverska fyrirtækið er orðið stærri hluthafi í bankanum heldur en konungsfjölskyldan í Quatar og þar með stærsti hluthafinn í bankanum.
Í frétt CNN Money um málið segir að þetta sé dæmi um aukin alþjóðleg umsvif kínverskra fjármagnseigenda, en á síðasta ári hafi kínversk fyrirtæki tilkynnt um viðskiptasamninga að andvirði um 220 milljarða Bandaríkjadala, sem sé meira en nokkru sinni fyrr.
Meira en þreföldun síðan í febrúar
Fyrirtækið HNA hefur bætt við eignarhlut sinn í bankanum síðan í febrúar þegar hann var rétt yfir 3% í að vera nú orðin 9,92%, eða að andvirði um 3,4 milljarðar evra, eða sem samsvarar 395 milljörðum króna. Fyrirtækið hefur á síðustu misserum staðið í miklum fjárfestingum, meðal annars í flugfélögum, hótelum og tækni.
Fyrirtækið hefur staðið í fjárfestingum fyrir um 30 milljarða dali, síðan það var stofnað, en síðasta ár var stórtækast í sögu þess þegar það til að mynda keypti 25% hlut í Hilton Worldwide fyrir 6,5 milljarða dali.
Fjárfestir þrátt fyrir fjármagnstakmarkanir
Á sama tíma hefur fyrirtækið aukið mikið við skuldir sínar, en í apríl 2012 skuldaði það 13,3 milljarða dali. Hefur það skrifað undir fleiri en 10 samninga, að andvirði meira en 5 milljarða dali á fyrstu þremu mánuðum ársins, flestir utan Kína, en kínversk stjórnvöld hafa verið að stemma stigu við útflæði fjármagns á árinu.
HNA Capital, sá hluti félagsins sem sér um fjármálaþjónustu, hefur tilkynnt um eignir að andvirði 340 milljarða júana, eða 49 milljarða dala.
Embættismaður sem fékk lán frá stjórnvöldum
Fyrirtækið rekur uppruna sinn til Hainan Airlines, sem Chen Feng, fyrrum embættismaður í kínverskri héraðsstjórn, setti upp ásamt þremur öðrum með láni frá stjórnvöldum í héraði.
Auk þess að vera stjórnarformaður félagsins er hann lærður í búddískum fræðum og mikill talsmaður þess að varðveita hefðbundna kínverska menningu, á sama tíma og hinn 63 ára gamli milljarðamæringur vill hjálpa landinu að verða virtara á alþjóðavettvangi.