Viðræður eru í gangi á milli fyrirtækisins Heilsuþorp á Flúðum ehf og kínverska fyrirtækisins CSST International um byggingu heilsuþorps á Flúðum. Kostnaðurinn gæti numið á milli 6,5 til 7 milljarða króna.

Fram kemur á fréttavefnum Sunnlenska að CSST International komi að uppbyggingunni ýmist sem fjárfestar og mögulegir hluthafar.

Fréttavefur Sunnlenska