Hlutabréfamarkaðir í Kína féllu töluvert í viðskiptum dagsins. Talið er að lykilástæða lækkunarinnar sé áhyggjur af stykleika efnahag Kína.

Samsetta vísitalan í Sjanghæ lækkaði um 6,1% í viðskiptum dagsins. Samsetta Shenzhen vísitalan lækkaði um 7,2% og ChiNext, tækni markaður Kína, lækkaði um 7,5%.

Hang Seng hlutabréfamarkaðurinn í Hong Kong lækkaði einnig í viðskiptum dagsins, en lækkunin nam 1,58%. Nikkei í Japan hækkaði um 1,41% í dag.