Kista fjárfestingarfélag hefur keypt í Exista fyrir 11,4 milljarða króna, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Um er að ræða 338.615.637 hluti, keypta á genginu 33,55.

Guðmundur Hauksson er stjórnarformaður í Kista-fjárfestingarfélagi ehf en hann er jafnframt stjórnarmaður í Exista.

Eftirfarandi aðilar standa að Kistu - fjárfestingarfélagi ehf.: Sparisjóður Reykjavíkur og nágr. (eignarhlutur 41,56%), Sparisjóðurinn í Keflavík (eignarhlutur 27,85%), Sparisjóður Mýrasýslu (eignarhlutur 11,65%), Eyraeldi ehf., dótturfélag Sparisjóðs Vestfirðinga (eignarhlutur 6,14%), Þrælsfell ehf., dótturfélag Sparisjóðs Húnaþings og Stranda (eignarhlutur 4,83%) og Sparisjóður Svarfdæla (eignarhlutur 7,97%).