Kista - fjárfestingarfélag hefur keypt í Exista fyrir 6,4 milljarða króna, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Um er að ræða 289.024.223 hluti, keypta á genginu 22,2.

Fjöldi hluta í eigu fjárhagslega tengdra aðila eftir viðskiptin er 1.350.948.169.

Eftirfarandi aðilar standa að Kistu - fjárfestingarfélagi ehf.: Sparisjóður Reykjavíkur og nágr. (eignarhlutur 41,56%), Sparisjóðurinn í Keflavík (eignarhlutur 27,85%), Sparisjóður Mýrasýslu (eignarhlutur 11,65%), Eyraeldi ehf., dótturfélag Sparisjóðs Vestfirðinga (eignarhlutur 6,14%), Þrælsfell ehf., dótturfélag Sparisjóðs Húnaþings og Stranda (eingarhlutur 4,83%) og Sparisjóður Svarfdæla (eignarhlutur 7,97%).