Þessa dagana er unnið að sameiningu Kers hf. og Kjalars ehf. hf. í eitt fjárfestingarfélag en við það verður Egla hf. 100% dótturfélag hins sameinaða félags að því er segir í fréttatilkynningu.

Markmiðið er að efla og hnitmiða starfsemina með áherslu á frekari uppbyggingu utan Íslands en þegar hafa verið stofnuð dótturfyrirtæki í Hollandi og Englandi.

Í tilkynningunni kemur fram að gert er ráð fyrir að hið sameinaða félag taki til starfa í næsta mánuði undir nafni Kjalars. Eignir hins sameinaða félags eru 90 milljarðar króna og eru þær helstu eignarhlutur í Kaupþingi banka hf., í Alfesca hf., í Samskipum hf., í fasteignafélaginu Festingu ehf. og ýmsum öðrum félögum.

Hjörleifur Jakobsson hefur verið ráðinn forstjóri Kers hf. og verður forstjóri hins sameinaða félags. Hjörleifur var forstjóri Olíufélagsins ehf frá ársbyrjun 2002 til 1. mars s.l. og forstjóri Hampiðjunnar á árunum 1999-2001. Áður gegndi Hjörleifur ýmsum stjórnunarstörfum hjá hf Eimskipafélagi Íslands frá 1984 til 1999. Hjörleifur lauk verkfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1981 og meistaraprófi í vélaverkfræði frá Oklahoma State University 1982.

Guðmundur Hjaltason, forstjóri Kers hf., hefur ákveðið að láta af störfum og hverfa til nýrra verkefna. Guðmundur hefur verið forstjóri Kers frá árinu 2003.