Fundarsetum kjararáðs um þá beiðni Geirs H. Haarde forsætisráðherra, að laun þeirra sem ráðið ákveður verði lækkuð um 5-15%, er nú lokið og niðurstaða komin.

Þetta kemur fram á vef mbl.is

Þar kemur einnig fram að Kjararáð hyggst þó ekki opinbera niðurstöðu sína að svo komnu máli, heldur verður svar sent forsætisráðherra áður en niðurstaðan verður kynnt almenningi.