Skrifað var undir kjarasamninga milli Samtaka atvinnulífsins og aðila vinnumarkaðarins í kvöld.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum um helgina hefur dagurinn í dag og í gær meira og minna farið í að klára formsatriði samninga og bíða eftir tillögum ríkisstjórnarinnar.

Þær bárust í dag og var þá farið að undirbúa formlega samninga sem skrifað var undir á níunda tímanum í kvöld.