Í nótt var gengið frá kjarasamningi Starfsgreinasambandsins (SGS) við ríkið og er samningurinn til 11 mánaða eða til loka mars 2009.

Þetta kemur fram á vef SGS.

Launataxtar hækka um 20.300 kr. frá og með 1. maí sl. en frá sama tíma tekur gildi ný launatafla.

Persónuuppbót á árinu 2008 verður 44.100 kr. og orlofsuppbót 24.300 kr. Réttur foreldra til fjarveru vegna veikinda barna fer úr 10 dögum í 12. Þá hækkar framlag ríkisins í styrktar- og sjúkrasjóð aðildarfélaga SGS í 0,75% af heildarlaunum starfsmanns frá 1. janúar 2009.

Þá var samið um sérstaka jöfnunargreiðslu 17.000 kr. fyrir ræstitækna í tímamældri ákvæðisvinnu sem greidd verði út 1. desember nk. Tryggt var sambærilegt framlag til endurhæfingarmála 0,13% endurhæfingargjald.

Á vef SGS kemur fram að Signý Jóhannesdóttir formaður sviðs starfsmanna ríkis og sveitarfélaga er ánægð með niðurstöðuna „miðað við að ekki skuli vera samið til lengri tíma.“

„Vissulega hefði verið ánægjulegt ef að tekist hefði að ná fram sérstakri hækkun til umönnunarstétta og lagfæringum á vaktavinnuumhverfinu. Aðilar eru ásáttir um að ræða vaktavinnu og vaktaumhverfi á samningstímanum, sem vonandi mun leiða til úrbóta síðar,“ stendur á vef SGS.

Félagsmönnum aðildarfélaga SGS verður kynntur samningurinn á næstu dögum og stefnt er að því að atkvæðagreiðslu um samninginn verði lokið 20. júní nk.