Samtök atvinnulífsins (SA) og Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hafa ákveðið að nýta ekki uppsagnarákvæði kjarasamninga hinn 31. janúar næstkomandi. Sérstakt samkomulag milli samningsaðilanna var undirritað í dag sem staðfestir þessa ákvörðun.

Þetta kemur fram í tilkynningum á vef SA og ASÍ. Á báðum stöðum kemur fram að þetta sé gert „þrátt fyrir að stjórnvöld hafi ekki efnt fyrirheit sem gefin voru í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana 5. maí 2011,“ eins og það er orðað á vefsíðum SA og ASÍ.

Á vef SA kemur fram að samkvæmt ákvæðum kjarasamninganna frá 5. maí 2011 voru forsendur þeirra að á árinu 2011 færi kaupmáttur vaxandi, verðlag væri stöðugt, gengi krónunnar styrktist marktækt og að ríkisstjórnin efndi gefin fyrirheit.

„SA og ASÍ eru sammála um að ekki sé ástæða til uppsagnar kjarasamninga vegna þróunar kaupmáttar, verðlags og gengis krónunnar en að forsendan um efndir ríkisstjórnarinnar á gefnum fyrirheitum hafi ekki staðist,“ segir á vef samtakanna.

„SA telja að uppsögn samninga leiði ekki til betri stöðu fyrir atvinnulífið eða samfélagið í heild. Uppsögn kjarasamninga muni ekki bæta skilyrði fyrir fjárfestingar í atvinnulífinu, fjölgun starfa og minna atvinnuleysi. Fjölmörg fyrirheit ríkisstjórnarinnar hafa ekki verið efnd en veigamest er að væntingar um auknar fjárfestingar og hagvöxt eru ekki að ganga eftir. Nýleg ákvörðun um skattlagningu lífeyrissjóða bætist síðan við sem gengur þvert á markmið yfirlýsingarinnar um lífeyrismál og eykur ójafnræði milli almennra lífeyrissjóða og þeirra sem eru á vegum hins opinbera.“

Þá kemur einnig fram að SA hafi lagt sig fram um að vinna með ríkisstjórninni svo sem Stöðugleikasáttmálinn frá júní 2009 og kjarasamningarnir 5. maí 2011 beri glöggt vitni um en ekki haft erindi sem erfiði.

„Ríkisstjórnin hefur hins vegar skapað mikið vantraust í sinn garð hjá þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem mynda Samtök atvinnulífsins og sýnt að hún er ekki traustsins verð,“ segir á vef SA.

Á vef ASÍ segir að ljóst sé að mikill meirihluti aðildarfélaga Alþýðusambandsins telji að mikil verðmæti liggi í þeim launahækkunum sem kjarasamningarnir tryggja og að ekki sé forsvaranlegt að grípa til uppsagna þeirra við núverandi aðstæður. Þetta sé niðurstaða umfangsmikillar umræðu sem átt hefur sér stað um forsendur kjarasamninga og framgang þeirra undanfarnar tvær vikur meðal samninganefnda rúmlega 50 aðildarfélaga ASÍ. Aðeins þrjú þeirra vildu segja upp samningum.
„Þær forsendur sem lúta að beinum samskiptum launafólks og fyrirtækja á borð við kaupmáttaraukningu launa, stöðugu verðlagi og styrkingu krónunnar standast,“ segir á vef ASÍ.

Því sé ekki ástæða til neinna sérstakra viðbragða af hálfu samninganefndarinnar gagnvart atvinnurekendum. Allar forsendur séu fyrir hendi að kaupmáttur almennra launa hækki þriðja árið í röð og mikilvægt að tryggja að af því verði. Þá kemur fram að fjórða forsenda kjarasamninga snúi að efndum ríkisstjórnarinnar á þeim fyrirheitum sem gefin voru með yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 5. maí 2011.

„Það er ekki ofsögum sagt að samskipti verkalýðshreyfingarinnar við ríkisstjórnina vegna vanefnda hennar á mikilvægum liðum yfirlýsingarinnar hafa verið með slíkum ólíkindum að hrikt hefur í stoðum,“ segir á vef ASÍ.

„Í þeim erfiðleikum sem þjóðin er í hafa aðildarfélög Alþýðusambands Íslands lagt mikla áherlsu á að skapa forsendur fyrir breiðri sátt á vinnumarkaði og við stjórnvöld. Sátt sem lagt geti grunninn að öflugri sókn í efnahags-, kjara- og atvinnumálum. Mikilvægur liður í þessu var að tryggja frið á vinnumarkaði á sama tíma og sóttar hafa verið kjarabætur fyrir íslenskt launafólk. Með gerð kjarasamninganna á síðasta ári tókst þetta verkefni. Það er því makalaust að það skuli vera ríkisstjórn Íslands sem er sá aðili sem ógnar þeirri sátt sem náðst hefur á vinnumarkaði.“

Þá segir á vef ASÍ að þrátt fyrir mikla tregðu á stjórnarheimilinu hafi við þessa endurskoðun kjarasamninga tekist að þoka áfram mikilvægum málum.

„Má þar nefna tilraunaverkefni þar sem stéttarfélögin í samstarfi við atvinnurekendur koma í ríkara mæli að þjónustu við atvinnuleitendur einkum í formi ráðgjafar og vinnumiðlunar. Átak verður gert í baráttunni við félagsleg undirboð í tengslum við útboð þjónustu og verklegra framkvæmda og kennitöluflakk. Alþýðusambandið mun koma að endurskoðun laga um almannatryggingar sem miða m.a. að því koma á frítekjumarki vegna greiðslna úr lífeyrissjóðum,“ segir á vef ASÍ.

Þá segir á vef ASÍ  að margt standi enn út af borðinu þegar kemur að atvinnumálum og fátt hafi verið gert.

„Sérstök vonbrigði vekur sá seinagangur sem er í afgreiðslu rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma sem átti að liggja fyrir í lok síðasta árs. Mikilvægt er að sú vinna við faglega forgangsröðun virkjanakosta, sem átt hefur sér stað sl. 10 ár, verði lögð fram á Alþingi og að um hana geti verið breið sátt því með henni yrði lagður grunnur að 10-15 ára uppbyggingu atvinnulífs í sátt við náttúruna,“ segir á vef ASÍ.

„Þrátt fyrir að tekist hafi að þoka málum áfram eru það mikil vonbrigði og að sama skapi ámælisvert að vinnubrögð ríkisstjórnarinnar séu með þeim hætti að málum er hleypt í farveg átaka um efnisatriði sem sátt hafði náðst um fyrir átta mánuðum. Innan raða Alþýðusambandsins ríkir mikil gremja í garð stjórnvalda vegna þessa. Það er ólíðandi að íslenskt launafólk skuli ekki geta treyst orðum oddvita ríkisstjórnarinnar.“